Tík á
lóðarí
19.8.00
Hér í
Mosfellsbænum er einn nágranni minn með fallega retriever tík sem
heitir Lotta. Sonur hans, hann Siggi litli bað mömmu sína um að fá
að fara með Lottu út að leika. Móðir hans sagði að hann fengi ekki
að fara með Lottu út því hún sé á lóðarí.
„Mamma, hvað er lóðarí?“ Spurði Siggi litli. Mamma
svaraði: „Farðu niður í kjallara og spurðu hann pabba
þinn.“
Siggi litli fór til pabba síns og sagði við hann.
„Mamma sagði að Lotta sé á lóðarí og hún þarf að komast út. Hún
sagði að þú ættir að sjá um það.“
Pabbi vætti tusku með bensíni og smurði því á
afturenda Lottu og sagði við Sigga litla. „Nú geturðu farið út með
Lottu.“
Nokkrum mínútum seinna kemur Siggi litli heim aftur
og mamma spyr: „Hvar er Lotta?“
„Hún varð bensínlaus og hundurinn hans Óla er að
ýta henni áfram.“
Gamla
trillan
13.10.00
Jói og Siggi
eru eineggja tvíburar og búa í litlu þorpi á vestfjörðum. Jói á
gamla trillu og fer hann mikið á sjó þá venjulega einn.
Eitt sinn lánaði hann sonum frænda síns trilluna og
ungu mennirnir strönduðu trillunni. Jói var heilan dag að bjarga
því sem bjargað var úr trillunni enda var hún ónýt.
Jói vissi ekki að sama dag dó mágkona hans, konan
hans Sigga í bílslysi enda var hann ekki með kveikt á farsímanum.
Þegar hann kemur í kaupfélagið hittir hann prestfrúnna sem segir:
„Mér þóttu þessar fréttir agalegar, ég samhryggist þér innilega.“
Jói svaraði: „Blessuð vertu, þetta er ekkert mál, hún var orðin
gömul og lúin og því er engin ástæða til að taka svona nærri sér.
Það voru mistök að leigja hana til strákanna hans Gunna frænda og
það voru þeir sem gerðu út af við hana þegar þeir hossuðu sér báðir
á henni.“
Jói skildi ekkert í því að prestfrúin sló hann
utanundir og kallaði hann óforbetranlegan sóðakjaft.
Ljóskan á
bókasafninu
7.10.00
Ljóska kom á
bókasafnið og sagði: „ég fékk lánaða bók í síðustu viku og hún er
alveg ferleg. Það er enginn söguþráður og alltof mörg nöfn talin
upp.“ Afgreiðslukonan áttaði sig strax og kallaði í forstöðukonuna
sem sat þar rétt hjá: „Helga, konan sem tók símaskránna er
hérna.“
Þjónninn: Jæja, í dag er ég með reykta tungu,
steikta lifur, nýru í kássu og grísalappir.
Gestur: Ég var ekki að spyrja um heilsufar
þitt.
Ljóskan var að keyra í
Hafnarfirði þegar löggan stoppaði hana og bað um
að
fá að sjá ökuskírteinið hennar. Hvað er það spurði hún.
Það er svona bleikt með mynd af þér. Hún leitaði í veskinu
þangað til hún
fann bleika púðurdós, tók hana upp og opnaði og leit í
spegilinn.
Er það þetta spurði hún?
Löggan tók dósina og leit í spegilinn og segir svo.
Nú! Ekki vissi ég það þú værir í
lögreglunni!!
Af hverju varð
ljóskan svona glöð þegar hún gat klárað púsluspilið sitt á sex
mánuðum? Það stóð '2-4 ára' á kassanum.